kjúklingasalat m. melónu og valhnetum                              f. 4

Einnig er hægt að nota nektarínur, ferskjur eða mangó í þessa uppskrift

 

 

 

 

 

1/2 hunangsmelóna
2 bollar grillaður kjúklingur
1/2 bolli rauðlaukur, smátt saxaður
1/3-1/2 bolli vinaigrette
6 bollar blandað salat og baby spínat
1/2 bolli valhnetur, gróft saxaðar

Matreiðsluleiðbeiningar:
Skerið melónuna í bita og setjið í stóra skál. Blandið kjúklingi og lauk saman við. Dreypið vinaigrette yfir. Lokið skálinni og setjið í ísskáp í a.m.k. 15 mín. Bætið þá salati og valhnetum við, blandið vel og berið fram. Ef vill má setja meira vinaigrette saman við.

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872