
Boðskortin voru rosalega krúttleg...

...enda bleik og baby-leg

rósaskreytingar, bleikt og hvítt sælgæti og bleik kerti voru þema
dagsins

Kertaskreyting gerð úr borðum sem límd voru á kertin og miði með
nafni barnsins límdur þar ofan á

maturinn kom vel út á borðinu, mikivægt að hugsa til þess að lyfta
borðinu aðeins með mismunandi háum fötum

ein fallegasta kransakaka sem ég hef séð kom frá Café Konditori
Copenhagen, við skreyttum hana með borða og miða með nafni barnsins

útum allt höfðum við litlar rósaskreytingar, bleik kerti með
jarðarberjailm og svo sælgæti, allt í eins kertaglösum

engu líkara var en að gestirnir hefðu fengið að vita litaþemað
fyrirfram því að pakkaborðið leit mjög girnilega út

til minningar um daginn var skírnarbarninu færður þessi rammi með
allskonar upplýsingum um fæðingardag sinn.

glösin voru skreytt með bleikri sykurrönd
|
Það var fyrir nokkru að ég tók að mér að aðstoða við
skírnarveislu lítillar prinsessu sem fékk nafnið Eva María. Þessi
skírnarveisla er ein sú fallegasta sem ég hef komið að og ákvað því að
deila henni með ykkur. Eva María fæddist
inn í lítinn strákahóp og því var bleika deildin nýtt til hins ýtrasta og
ekkert til sparað þegar bleiki liturinn var annars vegar eins og
lítilli prinsessu sæmir. Boðið
var til síðdegisveislu með bæði börnum og fullorðnum sem var boðið
uppá kampavín í tilefni dagsins en börnin fengu sprite. Allt
matarkyns voru pinnamatur eða smáréttir og diskar því óþarfir.
Má segja að þetta hafi verið kokteilboð til heiðurs dömunni.
Ítölsku snitturnar komu frá Jóa Fel en ég bakaði smápizzurnar og
húðaði jarðarberin. Smá
pizzurnar sem voru ætlaðar börnunum reyndust vera mjög vinsælar hjá
bæði börnum og fullorðnum og óhætt að mæla með þeim í miklu magni. Í
desert var svo kransakaka en börnin gerðu sælgætinu góð skil.
matseðillinn
bruscetta
snittur
heitar
smá
pizzur
súkkulaðihúðuð jarðarber
kransakaka
drykkir
kampavín
sprite
minnisatriði
Viku áður: sendu út boðskortin, keyptu servíettur og
kerti og gerðu þér ferð í ÁTVR. Pantaðu veisluföngin og kransakökuna.
4 dögum áður: Útbúið smápizzurnar og bakið til hálfs.
Kælið og leggið á milli laga í smjörpappír og frystið. Þær eru svo
settar frosnar í ofinn og bakaðar til fulls rétt áður en að þær eru
bornar fram.
2 dögum áður: Keyptu rósirnar svo þær hafi náð að springa
aðeins út áður en að þær eru klipptar niður í skreytingarnar. Útbúðu
kertaskreytingarnar og verslaðu sælgætið.
Daginn áður: Leggðu dúkinn á borðið og írðu á hann vatni. (sjá
þjóðráð á forsíðu). Settu kerti í glös, rósir í glös og sömuleiðis
sælgætið. Finndu til öll þau föt og skálar sem þú ætlar að nota og
ákveddu hvernig þau eigi að raðast á borðið þannig að gott jafnvægi
skapist. Kauptu jarðarberin og geymdu í kæli.
Samdægurs: Byrjið daginn á því að húða jarðarberin. Sækið
veisluföngin og kökuna og kælið kampavínið. Kampavínsglösunum er gefið
nýtt útlit með því að dýfa þeim í bleikan sykur; Hræriðsaman
eggjahvítu og örlitlu vatni og setjið á undirskál. Blandið saman
bleikum matarlit og sykri í litlum poka og veltið honum um þangað til
að allur sykurinn er jafn bleikur, hellið á undirskál. Dýfið
glasabörmunum fyrst í eggjahvítuna og svo í sykurinn og látið
standa í svona hálftíma áður en þau eru borin fram.
mynstur og margbreytileiki
Eins og áður sagði kom ekkert annað til greina en að nota bleikt
við þetta tilefni. Öllu má þó ofgera og til að skapa mótvægi völdum
við hvítan og kremaðan lit til að hafa með. Rósirnar vour bæði bleikar
og kremaðar, sömuleiðis servíetturnar, kakan, sælgætið og kertin.
Lítil kertaglös voru notuð í þrennum sem voru grúppaðar saman og
dreift um húsið. Í einu glasanna voru rósir, í öðru sælgæti og því
þriðja kerti með jarðarberjailm. Aðalblómaskreytingarnar voru rósir í
ferköntuðum vösum, fyllt var upp með litlum vatnsperlum sem fást í
blómabúðum, rósastilkarnir klipptir stuttir og raðar þétt saman ofan í
vasann. Á bleiku rósirnar lét ég svo hvíla nokkrar litlar hvítar
perlur en bleikar perlur á þær hvítu. Vasinn var skreyttur með borða
og litlum miða með nafni barnsins. Sama skreyting var notuð á kökuna
og stóru kertaskreytinguna til þess að skapa heildarmynd.
möguleikar
• Í staðinn fyrir kransaköku eða jafnvel með henni væri upplagt að
bjóða uppá bleika marengskossa.
• Í kertaglösunum geta líka verið bleik
kerti í staðinn fyrir sprittkertin og fólki í sjálfvald sett hvort það
vill nota ilmkerti eða ekki.

• Það er auðvelt að breyta þessu í
strákaþema með því að skipta um liti en kannski að nellikkur eða
gerberur hæfi þá betur en rósir.
• Bleikt kampavín svo sem eins og
Fresita eða kannski bara bleik kampavínsglös ef þau eru á lausu, geta
líka vel gengið og sett skemmtilegan svip á samkomuna.

minningar
Til minningar um daginn var Evu Maríu færður rammi þar sem fram komu
alls kyns upplýsingar um fæðingardag hennar og nafn. Hann vað að
sjálfsögðu bleikur !
mússík
Einhver klassí kokteil mússík eins og frá "croonernum" Michel Bublé
passar eins og flís við rass við svona tilefni. Annar sem fer
frábærlega með gamla standarda er t.d. Harry Connick Jr. Í
aðeins öðrum stíl eru þau í Pink Martini sem eru kokteil band
aldarinnar. Mæli með þeim.
Tengt efni:
Barnaafmæli f. 45
Brunch f. 20
Skreytt f. brúðkaup
|