
Það fer eftir því hvernig viðurinn var meðhöndlaður í upphafi,
hvaða meðferð á við hverju sinni.

Ef að viðkomandi hlutur er antík eða mikils
virði persónulega myndi ég fara með hann í viðgerð og ekki reyna
að gera við blettina sjálf.
|
Við sem eigum viðarhúsgögn þekkjum það að hafa kannski sett
kaffibolla eða skálar með heitum mat á borð sem hefur svo skilið
eftir sig ljóta hvíta bletti. Einnig geta komið för eftir vatn sem
mynda hringi eftir ummáli þess sem sett var á borðið og að lokum
er alltaf sú hætta að flöturinn upplitist af sólarljósi og skilji
þá eftir sig dökka bletti þar sem eitthvað var sett á borðið og
sólarljósið náði ekki til. Til eru ýmis ráð við þessu og það
virðist fara eftir því hvernig hluturinn er unninn, hvaða ráð duga
til að uppræta blettina. Það skal tekið fram að ég hef ekki prufað
öll þess ráð og tek því enga ábyrgð á niðurstöðunum en það er um
að gera að prófa sig áfram og byrja á litlu svæði fyrst, á
þeim stað sem minnst er áberandi.
- Ef að flöturinn er olíuborinn er hægt að smyrja majonesi á
blettinn og láta standa svolitla stund, jafnvel yfir nótt.
Majonesið er svo strokið af og flöturinn pússaður eins og
venjulega. Eins má nota piparmyntuolíu eða húsgagnaolíu.
- Sé flöturinn lakkaður má reyna eftirfarandi: pússa blettinn
með skóáburði í réttum lit, tannkremi eða fægilegi sem ætlaður
er messing. Ef ekkert af þessu dugar er reynandi að strauja yfir
blettinn með volgu straujárni og hafa tvöfalt viskastykki yfir.
tengt efni:
Að hreinsa mottur
Að
geyma rúmföt
Að slétta borðdúk án straujárns |