að hengja upp myndir

Myndaður kassi með uppsetningu spegla

Stigar geta verið mjög erfiðir viðfangs þar sem veggrýmið er ekki rétthyrnt

Nokkur dæmi um hvernig hægt er að hengja upp myndir

 

 

 

  • Að hengja upp margar myndir saman þannig að þær myndi fallega heild getur verið í besta falli svolítið erfitt  en í versta falli ómögulegt. Hafa verður í huga að maður verður að horfa á þessar myndir og uppsetningu þeirra daglega, þannig að það er eins gott að vanda sig þegar að kemur að uppsetningu þeirra og kasta ekki til höndunum.
     
  • Þegar hengja á upp margar myndir verður að huga að samræmingu þeirra á einhvern hátt. Vanalega er heildarmynd fengin með því að nota eins eða mjög svipaða ramma, t.d. alla eins á litinn eða þá alla af sömu stærð. Einnig er hægt að ná fram sömu samræmingu ef að allar myndirnar sem notaðar eru séu svart-hvítar og í því tilfelli mega rammarnir vera mismunandi.
     
  • Eitt það einfaldasta sem hægt er að gera til að fá svona myndavegg til að virka er að mynda "kassa"  eða rétthyrning á vegginn með uppsetningu myndanna. En það eru fleiri möguleikar í stöðunni, það eina sem þarf að hafa í huga er að jafnvægi myndist á veggnum (stærð veggrýmis og stærð myndar verður að vera í réttu hlutfalli)  og innbyrðis á milli þeirra verka sem hengja á upp. Það er líka fallegt að mála rétthyrning á vegginn í dekkri lit og nota hann sem einhverskonar ramma utan um heildina.
     
  • Að velja saman nokkrar myndir hefur marga kosti og einn er þeirra er að þá er hægt að sníða stærð "grúppunnar" að stærð veggjarins og þar fyrir utan skapar þetta góðan fókus þegar komið er inn í rýmið.
     
  • Myndir eru sagðar eiga að vera í augnhæð en svo eru ekki allir á einu máli um hver þessi augnhæð sé. Sumir segja að miða eigi við augnhæð standandi fólks en aðrir vilja meina að augnhæð sitjandi manneskju sé betri mælikvarði. Ég hef haft það fyrir reglu að notast við báða mælikvarðana, þ.e. að á þeim svæðum þar sem mest er setið, t.d. í borðstofum, miða ég við augnhæð sitjandi en annars staðar svo sem á göngum, miða ég eingöngu við augnhæð standandi. Þetta verður að meta í hverju tilviki fyrir sig.
     
  • Til að gera verkið auðveldara er gott að strika utan um hvern ramma á brúnan pappír, merkja á pappírinn í hvaða hæð naglinn fyrir viðkomandi mynd þyrfti að vera og klippa svo út. Síðan er hægt að nota kennaratyggjó til þess að víxla og rótera myndunum að vild þangað til að maður er ánægður með útkomuna. Þá er einfaldlega neglt í merkingarnar á pappírnum og hann ekki rifinn frá fyrr en búið er að negla alla naglana upp. Einfalt ekki satt!
     
  • Gott er að byrja á að staðsetja tvær stærstu myndirnar og reyna svo að fá þær minni til að mynda jafnvægi á móti þeim.
     
  • Ef þú átt einhverja möguleika á að breyta lýsingunni á veggnum skaltu endilega nota tækifærið, vel upplýstar myndir eru meira áberandi sem þungamiðja rýmisins og njóta sín betur.
     
  • Áður en að myndirnar eru hengdar upp er gott að líma plastbólur hvert í sitt hornið á bakið á rammanum, þannig haldast myndirnar stöðugri og rispa heldur ekki undirlagið. Í mörgum tilfellum kemur þetta líka í veg fyrir að veggurinn upplitist eða að það komi dökkt far í kringum hverja mynd.
     
  • Myndir þurfa að "anda", ekki gera þau mistök að hengja þær of þétt saman.
     
  • Ef þú ert að hengja upp myndir á veggfóðraðan vegg skaltu nota dúkahníf til þess að skera smátt V í veggfóðrið þar sem naglinn á að koma. Lyftu upp bútnum sem myndast þegar þú skarst V-ið og negldu naglann í gatið. Þegar þú vilt breyta til og taka myndina niður getur þú tekið naglann, límt flipann niður á ný og þá eru ölm ummerki um myndina horfin.

 

 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872