 Hér er
borðinn hafður í sama lit og myndin

Hér er borðinn notaður til þess að sameina nokkrar litlar myndir

Hér er borðinn hafður blár til þess að kallast á við rammann

Hér er ramminn, myndin og veggurinn í sama tón

Borðar notaðir til að sameina nokkrar litlar myndir á stöng

Hér eru borðarnir og rammarnir hafðir
ósamstæðir en myndirnar og stærð rammana mynda heild
|
Sú aðferð
að nota borða til þess að hengja upp myndir hefur aftur verið að
ryðja sér rúms og eru útgáfurnar óendanlegar. Hafa verður í huga
að velja borðann þannig að hann sé í stíl við annað hvort vegginn
sem hann á að fara á, myndina sjálfa eða þá rammann. Hér til
hliðar notaði ég t.d. gulann borða sem endurspeglaði gula litinn í
myndinni og svo aftur gula litinn á veggjunum (sem ekki sést). Til
þess að kóróna þetta límdi ég fallega tölu með límbyssu á naglann
þegar ég hafði rekið hann í vegginn. Á neðri myndinni saumaði ég
töluna við borðann sjálfann og útbjó lykkju aftan á slaufuna til
þess að hengja borðann upp. Endilega prófið aðrar útfærslur eftir
ykkar höfði.
|