
Miðað við þann fjölda leiða sem hægt er að fara í innanhúshönnun
hef ég oft velt fyrir mér hvers vegna íslensk heimili eru svona
einsleit. Hér koma bara nokkur dæmi:
Japanskur stíll
Kínverskur stíll
Indverskur stíll
Norrænn stíll
Sænskur sveitastíll
Marokkóskur stíll
Grískur stíll
Franskur Antík stíll
Franskur sveitastíll
Karabískur stíll
Ítalskur sveitastíll
Ítalskur modern stíll
Ítalskur Memphis stíll
Art nouveau
Art Deco
Arts and crafts
50´ áratuguinn
60´áratugurinn
70´áratugurinn
Funkis
Bauhaus
Rómantískur stíll
Amerískur Kántrý stíll
Mexíkanskur stíll
New York Loft stíll
Spænskur stíll
og svona mætti lengi telja.
|
- Fyrir alla muni taktu þér tíma til þess að uppgötva þinn
persónulega stíl og reyndu að gera greinarmun á því sem hrífur
þig af því að það er í tísku og svo aftur því sem þú átt eftir
að vera hrifin af um ókomna tíð.
- Byrjaðu á því að festa / ákveða hver fókusinn er í rýminu,
það getur verið arinn, gluggi, stórt málverk, rúm eða innrétting
sem ekki verður færð.
- Skrifaðu niður hvaða stíl þú sækist eftir og þá á ég ekki
við stutt og laggott ; Kántrý. Heldur ; Franskur sveitastíll með
köflóttum efnum, vírnetshurðum í innréttingum, gyllt og svart
ásamt bláu í litaskema og hvít-máluðum húsgögnum. Vertu
eins nákvæm/ur og þú getur og það gerir eftirleikinn mun
auðveldari.
- Veldu fyrst eitthvað eitt sem yrði þá útgangspunktur fyrir
það sem koma skal. Þetta getur verið motta, gluggatjöld, púðar
eða skrautmunur. Viðkomandi hlutur ætti að endurspegla þinn
karakter og lífstíl. Útfrá honum velur þú svo litaskema, stíl og
það andrúmsloft sem þú sækist eftir.
- Þegar útgangpunkturinn hefur verið fundinn og ákveðinn stíll
valinn skal hefjast handa við að velja stóra og áberandi hluti
inn í herbergið eins og t.d. sófa, borðstofuborð, rúm eða
þvíumlíkt.
- Áður en hafist er handa við að mála skal ávallt ákveða hvaða
gólfefni eiga að vera á rýminu og hvort taka þurfi tillit til
áklæðis eða gluggatjalda sem fyrir eru.
- Það kemur best út að blanda saman mynstrum og litatónum til
þess að halda fjölbreytninni. Þetta gerir það að verkum að að rýmin virka
aldrei óspennandi að horfa á. Það er hægt að blanda saman
rósóttu, röndóttu og köflóttu eða t.d. stór mynstrað með smá
mynstruðu. Sömu áhrifum er hægt að ná með mismunandi áferðum.
Fínflauel á móti grófri hör, leður með silki o.s.fr.
- Þegar hugað er að staðsetningu húsgagna skal alltaf taka
tillit til aðgengis og gangvega og passa að loka aldrei hluti
eða innréttingar af.
- Ákveddu hlutverk rýmisins og gættu þess að velja hluti og
húsgögn sem hæfa því hlutverki. Ef að t.d. borðstofan þín er
líka vinnuherbergi er ekki gáfulegt að velja þangað inn viðkvæmt
antíkborð sem rispast auðveldlega.
- Forðast skal að blanda saman mörgum viðartegundum.
- Endurtekning er lykilatriði; ein rauð skál á borði getur
virkað eins og að hún sé þar alveg óvart en ef þú bætir við
rauðum kertum, púða með rauðu mynstri og pottablómi sem
blómstrar rauðu verður strax ljóst að rautt er hluti af því
litaskema sem þú hefur valið þér.
- Lýsingin skiptir miklu máli og fyrst er að huga að hlutverki
rýmisins, ákveða hvar þurfi vinnulýsingu, hvar hún þurfi
einungis að vera "kósý" og hvar þurfi að lýsa upp sérstaka hluti
eða hluta.
- Nýttu þér andstæður á jákvæðan hátt. T.d. njóta dökk húsgögn
sín betur á ljósum grunni og svo öfugt.
- Skapaðu flæði og tengingar á milli herbergja og hæða með því
að nota sömu litatóna, efni og stíl og endurtaktu sama stef með
ólíkum áherslum.
- Veldu aukahluti sem styrkja þá ímynd sem þú sækist eftir; ef
þú hefur valið þér grískan stíl er tilvalið að hafa gardínurnar
í Toga stíl og kaupa sér nokkra gríska vasa.
- Paraðu saman hluti til að undirstrika jafnvægi og samræmi.
- Notaðu oddatölur (3,5,7) þegar þú velur saman hluti á borð
eða í hillur. Þegar valdir eru saman hlutir sem eru mismunandi
háir skal setja þá saman innan ímyndaðs þríhyrnings.
- Dragðu athyglina að því sem er sérstakt eða fallegt í rýminu
en reyndu að fela það óhagstæða. Oft er lausnin falin í því að
breyta neikvæðum hlutum í jákvæða.
- Nýttu þér línur til þess að undirstrika rýmið og villa
augað. Láréttar línur lengja, lóðréttar línur skapa hæð og
skálínur stækka.
- Klipptu út myndir og efnisprufur og komdu fyrir á einu blaði
svo að þú náir að sjá heildarmyndina og hvort að það sem þú
hefur í huga virki saman.

Eins og sést er að mörgu að hyggja þegar innrétta skal heimilið
á fallegan og persónulegan hátt. Ef að þér finnst þetta flókið mál
eða veist hreinlega ekki hvar þú átt að byrja er ráðlegt að hafa
samband við stílista til þess að koma þér af stað. Oft kemur
ókunnugur með sniðugar lausnir sem þér hefði ekki dottið í hug og
ósjaldan hef ég sparað fólki töluverðar fjárhæðir með ráðleggingum
mínum. |