Uppstillingar

Þrennur eru auðveld leið til að gera mikið út litlu, svona vasi, stakur með einu blómi, væri hálf asnalegur einn og sér en þegar þeir eru orðnir 3 gegnir allt öðru máli.

 


Tveimur pörum stillt upp saman og aðeins leikið sér með hæðina á stjökunum.
 


Á þessari mynd sjáum við bæði pör, oddatölur og speglun, hlutföllin eru rétt og augað nemur þetta jafnvægi.

 


Eitt par af vösum með eins skreytingu gera mikið fyrir þetta horn.

 


Hér eru notuð pör af kertastjökum og tveir stakir hlutir með. Þessir hlutir eru eins í útliti og sá sem fjærst stendur er svipaður að hæð og stjakarnir á hinum endanum. Þess vegna gengur þessi uppstilling upp.

 


Þegar notaðir eru stakir hlutir skal gæta þess að þeir séu nógu stórir til þess að fylla út í rýmið sem þeim er ætlað og "týnist" ekki.

 

 

 

 

Uppstillingar á smáhlutum eru tilvaldar til að fegra heimilið og ódýrasta leiðin til að breyta aðeins til. Það þarf ekki að breyta miklu eða kaupa allt nýtt til þess að lífga aðeins uppá umhverfið. Ég hef áður minnst á mikilvægi þess að tryggja alltaf jafnvægi ( Harmony) í öllu sem stillt er upp og að stilla bara upp pörum eða oddatölum. Speglun (Symmetry) er líka mikilvægt fyrirbæri hvað þetta varðar en ég ætla að geyma það að sinni. Uppstillingar eru í raun mjög nákvæm vísindi og það væri hægt að reikna sig að hárnákvæmri niðurstöðu en við ætlum nú að láta okkur nægja augað. Gott er að nota einhverja liti úr umhverfinu á þessum smáhlutum, eins og t.d. að taka liti úr málverki, granítborðplötu, veggfóðri eða einhverju álíka og leggja áherslu á þá með því að nota annað hvort anstæðu þeirra eða litinn sem er við hliðina á þeim á litahjólinu. Form, stærð  og lögun hlutanna skiptir líka máli og þeir þurfa að fylla uppí það rými sem þeim er ætlað.  Þetta er auðveldasta leiðin til uppstillingar á hlutum en ef þú ert t.d. að safna einhverju og átt bara einn stakan hlut af hverju þá gilda aðeins önnur lögmál sem ég skal fara í seinna. Ef þú ert ekki viss hvort þér hafi tekist vel upp mæli ég með því að þú takir mynd af uppstillingunni og þá er oft betra að sjá hvort hún sé að virka eða ekki.

tengt efni:

Myndir hengdar upp með borðum
Áhrif ljóss á liti
Leiðir til að stílisera heimilið
Að hengja upp myndir
Málað veggfóðursmynstur
Nútímastíll eða Módernismi
 

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872