páskatré og páskaskraut

Einhverra hluta vegna var ég ekkert sérstaklega stemmd fyrir því að útbúa hið hefðbundna páskatré í ár, fannst bara kominn tími til þess að hvíla það. Ég  hugleiddi  hvernig ég gæti útfært hugmyndina á annan hátt og var komin með alls konar háar hugmyndir að ótrúlega lekkerum og modern skreytingum. En þegar dóttir mín 5 ára spurði frétta af páskaungum og eggjum gerði ég mér ljóst að sumu borgar sig hreinlega ekki að breyta bara breytinganna vegna, sérstaklega þegar börn eru annarsvegar. Hún var alls ekki sátt og á endanum fór birkigreinin í vasa eins og undanfarin ár. Ég gerði þó þá breytingu að einfalda tréð heilmikið og hengdi bara á það nokkur hænuegg sem ég blés úr og málaði í fyrra. Utan um gamla og þreytta vasann hafði ég fléttað birkigreinar og ég notaði þær líka aftur en breytingin er samt heilmikil. Hér eru myndir af páskaskreytingunum í ár ásamt samanburðar myndum frá því árið 2001 ef mig minnir rétt. Hvoru tveggja ætti að geta gefið ykkur einhverjar hugmyndir. Guli liturinn er sá eini sem kemur til greina að mínu mati þó svo að maður geti notað aðra liti með svona til þess að lífga uppá og breyta til. Eins er fallegt að nota mismunandi efni og áferðir til þess að skapa gömlum skreytingum nýtt líf eins og t.d. andstæðurnar járn og fiður eða þá silkiborði og tré. Um að gera að leyfa hugmyndafluginu að njóta sín og mér finnst oft að bestu hugmyndirnar fæðist þegar að maður hefur út litlu að spila. Gleðilega páska !

tengt efni:
Páskamáltíðin
Sparileg kertaskreyting
Skreytt fyrir brúðkaup

 

 

tilefni@tilefni.is • Auður Ögn Árnadóttir • sími 862-2872
<