
Allt sem til þarft ef að þú vilt föndra svona veggskraut í ramma.

Bakgrunnurinn sem ég valdi var upphleypt veggfóður sem setur
mikinn svip á heildina.

Þessir rammar sóma sér vel með mosanum í hvort sem er hengdir á
vegg eða notaðir í stað vasa á borð.

|
Það er ekki
langt síðan að það fóru að fást djúpir rammar í IKEA sem gefa þá
möguleika að setja nánast hvað sem er inn í þá þar sem glerið er
mun framar en bakið. Þessir rammar krefjast þess að í þá séu
settir þrívíðir hlutir og þar er af nógu að taka. Ég sýnir hér
fram á tvö dæmi um notkun á þessum römmum; annars vegar rammaði ég
inn krossa og svo hinsvegar tók ég glerið úr og setti mosa í
staðinn. Þú þarft að hafa:
3 djúpa ramma úr IKEA
Upphleypt veggfóður eða annan fallegan bakgrunn
3 Krossa eða annað smádót (þessir eru úr UNIKA)
Límbyssu og límstifti
Skæri
Tússpenna
Reglustiku
Leiðbeiningar:
Takið bakið úr rammanum og mælið hversu stórt stykki þið þurfið að
klippa af veggfóðrinu til þess að þekja bakið. Klippið stykkið í
rétta stærð og límið með límstiftinu á bakið. Mælið miðjuna og
finnið út nákvæma staðsetningu hlutarins sem á að fara í rammann
og merkið með túss svo lítið beri á. Límið hlutinn niður með
límbyssunni og setjið ramman aftur utan um. Í hinu tilfellinu
var glerið einfaldlega fjarlægt og ramminn fylltur með mosa sem
fannst úti í garði.
tengt efni:
•
Glycerín gestasápur
•
Uppstillingar
•
Að hengja upp myndir
•
Myndir hengdar upp með borðum
|